Til baka á forsíðu

Námsferlið

Ökunámsferlið frá námsheimildar til fullnaðarskírteinis.

Námsheimild

Í upphafi ökunáms þarf ökunemi að sækja um námsheimild hjá sýslumanni, en það er gert með því að fylla út rafræna umsókn á island.is. Í framhaldinu þarf ökuneminn að skila inn passamynd til sýslumanns (og læknisvottorði ef við á).

Ökutímar

Þegar námsheimild hefur verið gefin út má ökunámið hefjast og verklegir ökutímar fara af stað. Haldið er utan um ferlið í ökunáminu með rafrænni ökunámsbók.

Æfingaakstur

Ljúka þarf ökuskóla 1 og að lágmarki 10 ökutímum áður en æfingaakstur með leiðbeinanda getur hafist. Þegar ökukennari hefur staðfest að ökunemi megi hefja æfingaakstur geta aðstandendur sótt um að gerast leiðbeinendur á vef island.is

Ökuskóli 1

Þegar verklega ökunámið er farið af stað getur ökuneminn byrjað í bóklega ökunáminu (Ö1), bóklega námið fer fram í gegnum fjarnám. Úrval ökuskóla má finna á netinu.

Ökuskóli 2

Ö2 er að jafnaði tekinn þegar styttast fer í bóklega prófið, en ökunemar geta tekið bóklega prófið allt að tveimur mánuðum fyrir 17 ára afmælið. Úrval ökuskóla má finna á netinu.

Ökuskóli 3

Ökunemi getur skráð sig í Ö3 eftir að hafa lokið 10 verklegum kennslustundum hjá ökukennara og lokið Ö1.

Bóklegt próf

Taka má bóklegt próf 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdag. Lágmarksfjöldi verklegra ökutíma fyrir bóklegt próf er 12 ef Ökuskóla 3 er lokið, annars 14. Ökunemar bóka sig sjálfir í bóklegta prófið á síðunni prof.is. Frekari upplýsingar um framkvæmd prófa má nálgast hér.

Verklegt próf

Þegar próftaki hefur lokið Ö1, Ö2, Ö3 og staðist skriflegt próf er heimilt að panta verklegt próf. Ökukennarinn sér um að panta próftímann. Ef próftaki stenst ekki próf er hægt að panta strax nýjan próftíma, en a.m.k. vika verður að líða á milli prófa. Próftakar verða að hafa meðferðis skilríki í prófið.

Akstursmat

Ökunemi sem hefur staðist verklegt próf fær bráðabirgðaskírteini sem gildir í 3 ár. Þegar ökumaður hefur verið með bráðabirgðaskírteini í 12 mánuði án þess að hafa fengið refsipunkt getur hann farið í akstursmat og fengið í framhaldinu fullnaðarskírteini. Akstursmat er framkvæmt af ökukennara.

Hefja ökunám